Fréttir úr Dalnum og hvað er framundan:
Kynningarfundur um áherslur í skipulagi Mosfellsdals og Þingvallavegar fyrir íbúa Mosfellsdals



Mættir voru u.þ.b. 50 Dalbúar auk annarra gesta frá hlutaðeigandi.
Fundarstjóri var Valdimar Birgisson, formaður skipulagsnefndar.
Boðað var til fundarins að frumkvæði Víghóls, samtaka íbúa í Mosfellsdal.
Á fundinum komu fram:
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi í Mosfellsbæ - Áherslur í skipulagi. Vinnslutillagu að aðalskipulagi fyrir Mosfellsdal. Markmið með aðalskipulagi er að skapa betri forsendur fyrir öruggari og heildstæðari skipulagningu svæðis í þéttbýli en Mosfellsdalur er lykilsvæði fyrir sjálfbæra þróun með áherslu á náttúruvernd, dreifða byggð og vistvænan landbúnað í samræmi við sérstöðu landslags og menningar.
Guðmundur Kristjánsson fyrir hönd Eflu og Vegagerðarinnar - Hönnun Þingvallavegar. Fyrirhugaðar framkvæmdir á Þingvallavegi sem einkennast helst af breikkun vegarins sem og öruggum þverunum í hverfi Mosfellsdals.
Lárus Elíasson leiðtogi Mosveitna – fyrirhugaðar breytingar á fráveitulögnum samhliða framkvæmdum á Þingvallavegi.
Kynningar þessara aðila má finna fyrir neðan samantekt af fundinum.
Að loknum kynningum var fyrirspurnum svarað.
Samantekt:
Núverandi aðalskipulag er í endurskoðun og kemur til með að gilda til 2040. Innan skamms verður það kynnt fyrir íbúum og leitað eftir frekara samtali.
Íbúar komu með marga góða punkta meðal annars um almenningssamgöngur og ýmsa þjónustu. Var vel tekið í þær ábendingar sem fram komu. Yfirvöldum virðist vera mikið í mun að fá sjónarmið íbúa fram.
Dalurinn er mjög fjölbreytt byggð, bæði skipulagt landbúnaðarsvæði og þéttbýli. Því þarf að vanda til verka þegar verið er að samþætta ólíkar þarfir og sjónarmið.
Forhönnun vegna nýs Þingvallavegar er lokið og er vinna við verkhönnun að fara af stað. Gert er ráð fyrir fjármagni til framkvæmda í samgönguáætlun 2028. Notað verður malbik í yfirborð vegarins og göngustígs. Götulýsing færist yfir veginn og verður á milli göngustígs og akvegar.
Ábending kom um hugsanlega hljóðmengun frá veginum. Hvorki er gert ráð fyrir hljóðvörnum né vegriði á milli akvegar og göngustígs. Göngu- og hjólastígur verður u.þ.b. 3ja m breiður með 25 cm öxlum hvoru megin. Veghelgunarsvæði vegarins er 30-50 m í hvora átt frá miðlínu akvegar sem með vegöxlum verður 9 m breiður.
Komið var á framfæri áhyggjum íbúa af umferðarhraða á Þingvallavegi. Vegurinn verður áfram ein akrein í hvora átt og gert ráð fyrir að hægt verði að endurskoða hámarkshraða til lækkunar, hann er nú 70 km/klst.
Athugasemdir komu um áætlaða drenlögn sem verður undir göngustígnum (u.þ.b. þar sem skurðurinn er núna). Miklar efasemdir eru um að hún muni geta tekið við því mikla vatnsmagni sem um er að ræða.
Íbúi minntist á stöðugan straum ferðamanna með tilheyrandi umferð og hávaða og vakti athygli á að stjórnsýslan þyrfti að huga að því hvort aðalleiðin til Þingvalla þurfi/ætti að liggja um Mosfellsdal og hlaut lófatak fyrir.
Ekki verður farið í umfangsmiklar umbætur á lagnakerfi Dalsins, sem komið er til ára sinna, fyrr en stofnlögnin hefur verið endurnýjuð. Mikið hefur verið um bilanir síðustu ár amk. 5-7 á ári skv. Lárusi.
Forhönnun á stofnlögnum er í bígerð og verkhönnun áætluð síðar á þessu ári.
Neysluvatnslögn verður undir stígnum og háspennustrengur aðeins til hliðar. Þetta kemur til með að auðvelda viðhald og viðgerðir til muna.
Varðandi rotþrær þá eru þær á ábyrgð húseiganda og eftirlit í höndum heilbrigðiseftirlits. Tíðni tæminga var um áramót breytt úr 2ja ára fresti í 3ja ára fresti. Lækkar gjaldið í 35 þúsund á ári.
Glærur frá kynningunum eru í viðhengjum og bendum við íbúum á að kynna sér þær vel og skoða myndir og teikningar.
Ljóst er að mikið er framundan á næstu árum og margt sem verður gert. Mikilvægt er að við sem einstaklingar leitumst við að fylgjast vel með í þessum málum og gera athugasemdir á réttum vettvangi þegar við á.
Stjórn Víghóls þakkar góða og málefnalega þátttöku.
Eldri fréttir:



Gleðilegt nýtt ár!
12.janúar 2026
Hannyrðakvöld verður haldið í Reykjadal fimmtudaginn 15. janúar. kl.19-21.
Hlökkum til að sjá hvað þið eruð með á prjónunum á nýju ári.
Öll og allt handverk velkomið 🙂
Sjáumst.

Skógræktin býður Dalbúum og þeirra föruneyti að koma í Æsustaðahlíð á sunnudaginn næsta, þann 21. desember frá kl 12:00 til kl 13.00 að sækja sér jólatré.
Boðið verður uppá rjúkandi heitt kakó og gómsætar smákökur!
Frábært tilboð fyrir okkur Dalbúa: 6.000 kr á tré óháð stærð.
Greiða þarf inn á reikning Víghóls með “jólatré” í skýringu fyrir laugardag: 0315-26-6411 kt. 641198-2779 og staðfestingu á vigholl@mosfellsdalur.is
Hlökkum til að sjá ykkur ![]()

Það er komin föndurstund!
10. nóvember 2025
Eigum góða föndurstund saman í Reykjadal, fimmtudaginn 13. nóvember nk. kl. 19-21
Taktu prjónana eða annað handverk með.
Glögg, piparkökur og ljúfir tónar.
Öll velkomin.

Hannyrðakvöld í október
1. október 2025
Næsta hannyrðakvöld verður haldið fimmtudaginn 9. október kl 19-21. hjá Sillu á Vindhól. Nánar tiltekið í hesthúsinu (svo mögulega prjóna þeir líka) mætið klædd miðað við það….Hlökkum til að sjá ykkur 🙂
Vel lukkað götugrill og vígsla á nýrri fánastöng í Balanum
9. september 2025
Föstudaginn 29. ágúst var blásið til götugrills í Balanum í tilefni af bæjarhátíðinni „Í túninu heima“. Stjórnarkonur Vighóls saumuðu veifur til að skreyta svæðið og sáu til þess að grillin væru heit, aðföng og tónlist til staðar. Nýja fánastöngin var vígð með bleikum fána og veðurguðirnir voru til fyrirmyndar fyrstu klukkustundina en svo skall á demban mikla. Íbúar létu fæstir það á sig fá og sungu sig í gegn um dropana í skjóli milli trjánna. Sumir voru þó fyrirhyggjusamari en aðrir og mættu með sína regnhlíf. Vel lukkuð stund sem vonandi verður endurtekin að ári (með aðeins meiri sól 🙂 )
Fjölmargir hafa lagt sitt af mörkum til að gera svæðið huggulegra og má þar nefna feðgana Gísla í Brekkukoti og Snorra, Andrés bónda á Hrísbrú, Munda, Nonna í Mosskógum og Gísla rósabónda. Byrjað er að reisa grillaðstöðu og hestagerði, búið er að sá í og slétta grasflötina og steypa fyrir fánastöng sem félagið festi kaup á í sumar. Það er mikill hugur í íbúum að halda áfram að byggja upp þennan fallega samkomureit Dalbúa, Balann.



Hannyrðakvöld í Balanum.
19. ágúst 2025
Dásamlegt veður og mættu saman kátar konur með sínar hannyrðir, stóla og drykk.
Takk fyrir komuna 🙂

Grenndarstöð í Mosfellsdal
6. júní 2025
Mosfellsbær hefur nú sett upp grenndarstöð við Mosfellsafleggjara.
Dalbúar eru hvattir til að kynna sér hvaða úrgang megi losa sig við þar og ganga vel um svæðið.

Prjónakvöld í Mosfellsdal.
Fimmtudaginn 15. maí í Reykjadal kl. 19-21
Síðasta prjónakvöldið í Reykjadal að sinni en hefjum aftur leikinn í september.
Hvetjum Dalbúa að mæta, prjóna saman og eiga góða stund.
Hlökkum til að sjá sem flest.
Stjórn Víghóls.

Prjónakvöld í Mosfellsdal.
Fimmtudagur 10. apríl í Reykjadal kl. 19-21
ENDURTÖKUM LEIKINN,
UPP MEÐ PRJÓNANA!
Hvetjum Dalbúa að mæta og prjóna saman. Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Eina sem þú þarft að koma með eru prjónar og garn.
Hlökkum til að sjá sem flest.
Stjórn Víghóls.

Prjónakvöld í Mosfellsdal.
Fimmtudagur 20. mars í Reykjadal kl. 19-21
Hvetjum öll kyn á öllum aldri að mæta og prjóna saman. Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Eina sem þú þarft að koma með eru prjónar og garn.
Hlökkum til að sjá sem flest.
Stjórn Víghóls.

Aðalfundur Víghóls var haldinn fimmtudaginn 13. mars 2025 í Reykjadal.
Góðmennt var og mættu um 20 manns á fundinn. Fundarstjóri var Birta Jóhannesdóttir (Birta í Skuld) og ritari var Sigríður Rún (Sigga Rún (á Minna-Mosfelli)
Farið var yfir hefðbundin aðalfundarstörf. Gísli Snorrason (Brekkukoti) var endurkjörinn skoðunarmaður reikninga. Sigga Rún og Elías Halldór Ágústsson (Víðihól) voru kosin í ritnefnd Dalalæðunnar.
Halla Fróðadóttir (Dalsgarði / Karabíska hafinu) Sara Hafbergsdóttir (Lundi) og Sigríður Rún (Minna-Mosfelli) luku sinni stjórnarsetu og er þeim hjartanlega þakkað fyrir þeirra góða framlag. Helena Jónsdóttir (Hveramýri), Ólafía Bjarnadóttir (Lækjarnesi) og Rakel Baldurs (Roðamóa) voru endurkjörnar og nyjir aðilar í stjórn eru Hólmfríður Ólafsdóttir ( Fríða á Hrísbrú) og Birta Jóhannesdóttir (Birta í Skuld).
Að loknum aðalfundarstörfum gæddu fundargestir sér á veitingum frá Jómfrúnni og skoluðu niður með búbblum og bjór og var stemmingin eftir því 😉
Fundargerð má nálgast á heimasíðu félagsins.
Aðalfundur Víghóls
Verður haldinn í Reykjadal fimmtudaginn 13. mars klukkan 20:00
Dagskrá: - Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar lögð fram.
- Reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Kosning stjórnar
- Önnur mál.
Skráning á aðalfund hér

