Stjórn víghóls
Rakel Baldursdóttir
Formaður
Móðir tveggja drengja, 9 og 11 ára, markþjálfi og gift honum elsku Jóa sínum, vann í Dalsgarði í rósadeildinni lengi vel milli þess að vera í listnámi og fjölga Dalbúum, hefur mikinn áhuga á umhverfisvernd, menntamálum, og að horfa í margslunginn persónuleika mannkyns, leggja sitt fram til að efla það og bæta. Rakel er hugmyndarík sem getur farið í algera afskiptasemi og getur á köflum (fyrir suma) verið óþolandi jákvæð.
Guðmundur Hreinsson
Stjórnarmaður
Eyddi unglingsárunum í Laxnesi að fara með túrista á hestbak um Mosfellsdal og lærði svo húsasmíði hjá Stjána snikkara í Viði. Fór í Meistaraskólann og svo til Danmerkur og kláraði BS í Byggingarfræði frá VIA University í Horsens. Þegar heim var komið þá rak ég mitt eigið verktakafyrirtæki fram að hruni 2008 og fór þá á menntavísindasvið HÍ og tók kennararéttindi og fór að kenna. Kenni í dag teikningu í húsasmíðadeild Fjölbrautarskólans í Breiðholti. Er einnig löggiltur mannvirkjahönnuður og rek mitt eigið fyrirtæki á því sviði eða Teikni- og tækniþjónustuna Togt ehf
Ólafur Dan SnorrasonVaramaður
|
Guðný Ragna Jónsdóttir
Ritari
Halldór Þorgeirsson
Stjórnarmaður
Á unglings- og menntaskólaárum stundaði Halldór á sumrum verkamanna- vinnu, síldveiðar og landbúnaðarstörf.
Hann lauk landsprófi við Gagnfræða- skólann vorið 1975, stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík 1979. Íþróttakennaraprófi lauk hann við Íþróttakennaraskóla Íslands 1982. Kennari var hann við Gagnfræðaskólann 1985-1997 og síðan þjálfari og íþróttakennari á sumrum 1975-2018. |
Ólafía Bjarnadóttir
Gjaldkeri
Móðir, eiginkona, BSc í viðskiptafræði með áherslu á markasfræði, MLM í forystu og stjórnun, eigandi og starfsmaður Verkstæðisins ehf, með fullkomnunaráráttu á háu stigi, stutt í grínið, vinur vina sinna og alltaf óstundvís.
Sigríður R KRistinsdóttir
Stjórnarmaður
|