mosfellsdalur.is
  • Forsíða
  • Víghóll
    • Stjórn Víghóls
    • Lög Víghóls
    • Fundargerðir
  • Fréttir
  • Dalalæðan
  • Viðburðir
    • Aðalfundir
    • Ljósmyndakeppni
    • Þorrablót
  • Silfrið
    • Myndbönd
    • Ljósmyndir
    • Fréttir
  • Hafðu samband

Lög víghóls


1.gr.
Félagið heitir Víghóll.

2. gr.
Tilgangur félagsins er að standa vörð um sameiginleg hagsmunamál íbúa í Mosfellsdal.

3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að fylgjast með þeim málum er varða hagsmuni íbúa Mosfellsdals, t.d.
skipulagsmálum og fleira.

4. gr.
Félagsaðild. Allir íbúar með lögheimil í Mosfellsdal 18. ára og eldri teljast félagar. Félagsgjald er sent á hvert heimili í valgreiðslu. Aðrir sem óska eftir aðild verða að fá samþykki á aðalfundi til inngöngu í félagið.


5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Allir íbúar geta verið þátttakendur í aðalfundi. Allir félagsmenn hafa atkvæðisrétt.


6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 10. mars ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með
sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður
úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar lögð fram. 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
4. Lagabreytingar. 5. Ákvörðun félagsgjalds. 6. Kosning stjórnar. 7. Önnur mál

7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3-5 félagsmönnum, formanni og 2-4 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins
árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður
boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.

9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til hagsmuna fyrir íbúa Mosfellsdals og fagnaði á vegum
íbúa Mosfellsdals

10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal.


Lög þessi voru samþykkt á félagsfundi 20.02.2020.
PDF skjal - lög Víghóls

Víghóll, samtök íbúa í Mosfellsdal   -   Pósthólf 1   -   270 Mosfellsbær  -  vigholl@mosfellsdalur.is

Víghóll © 2020
  • Forsíða
  • Víghóll
    • Stjórn Víghóls
    • Lög Víghóls
    • Fundargerðir
  • Fréttir
  • Dalalæðan
  • Viðburðir
    • Aðalfundir
    • Ljósmyndakeppni
    • Þorrablót
  • Silfrið
    • Myndbönd
    • Ljósmyndir
    • Fréttir
  • Hafðu samband