Stjórnarfundur
Mosfellsdalur, 25. ágúst 2021
Fundargerð stjórnar Víghóls
Mættir á Hraðastaðaveg: Gummi, Olla, Rakel, Dóri, Óli, Sigga og Guðný.
Tiltekt á brennusvæðinu
Ragnheiður prestur hefur ítrekað að það þurfti að taka til leifar frá síðustu áramótabrennu (2019).
Rætt var að halda varðeld í góðu tómi en engin dagsetning ákveðin.
Óvissuferð og hópefli.
Rakel kom með hugmynd að óvissuferð til að þjappa dalbúum saman. Ákveðið var að skoða betur í vor. Hugmyndir sem komu upp voru gönguferð, rútuferð eða golfmót.
Göngustígamálið
Ekkert er að frétta af því þrátt fyrir fyrirspurnir.
Mávar
Hvað er hægt að gera í mávagerinu sem herjar á dalinn? Líklegast til árangurs er að fara í fjöllin að vori. Dóri ætlar að fá upplýsingar hjá Guðna.
Pólitíkin
Hvernig höfum við áhrif? Þurfum að tryggja að inn í aðalskipulagi séu ennþá stórar lóðir í dalnum. Hugmynd að bjóða fulltrúum allra flokka á stjórnarfund um framtíð og stefnumótun Mosfellsdalsins.
Næstu aðgerðir sem voru ákveðnar
- Gummi sendir inn fyrirspurn varðandi aðalskipulagið
- Rakel ítrekar fyrirspurn um göngustíga
- Dóri talar við Guðna um mávana
- Ólafur sendir á biskupsstofu varðandi bilastæði Gvendarreit